Steindir eða steintegundir eru hinar náttúrulegu byggingareiningar allra bergtegunda á jörðinni. Bergtegundir eru flokkaðar eftir því hvaða steintegundir þær hafa að geyma. Jarðskorpan er gerð úr bergtegundum sem venja er að skipta í þrjá flokka eftir uppruna þeirra. Flokkarnir nefnast storkuberg, setberg og myndbreytt berg. Jarðskorpan er að langstærstum hluta úr storkubergi. Setberg og myndbreytt berg verða til við veðrun, rof og ummyndun.