Setberg
Þegar berg hefur veðrast og molnað í sundur taka roföflin við og bera þau til lægri staða þar til þau enda í hafinu. Þar sest bergmylsnan saman og myndar fast berg sem nefnist setberg. Lagskipting er oft mjög greinileg í setbergi þar sem elstu lögin eru neðst. Jarðskorpuhreyfingar hafa síðan fært lárétt setbergið úr sjó aftur upp á land þar sem við getum séð það ýmist lárétt, lóðrétt eða hallandi. Roföfl kallast þau nátturuöfl, eins og vatn og vindur sem geta flutt með sér efni.