Storkuberg
Öll sú bergkvika sem kemur upp á yfirborð jarðar í eldgosum kallast storkuberg. Storkubergi er yfirleitt skipt í gosberg, innskotsberg eða djúpberg, en það fer eftir því hvar það storknar. Gosberg er sú bergtegund sem brýst upp á yfirborð jarðar og storknar þar. Basalt er algengasta gosbergið á jörðinni. Ísland er að mestu úr basalti. Innskotsberg eða gangberg stroknar í sprungum frekar ofarlega í jarðskorpunni. Djúpberg stroknar aftur á móti miklu dýpra. Þeim mun dýpra sem berg stroknar í jarðskorpunni þeim mun hægar stroknar það og verður þar af leiðandi grófkornóttara.