Myndbreytt berg
Ef storkuberg eða setberg verður fyrir áhrifum af miklum hita eða þrýstingi breytist gerð þess og það verður að myndbreyttu bergi. Steintegundirnar sem upprunulega bergið var búið til úr hafa breyst í aðrar. Þannig getur bergtegundin kalksteinn ummyndast í marmara og granít í gneis. Granít og gneis eru allgengustu bergtegundirnar í Svíþjóð. Á Íslandi ummyndast berg aðallega vegna jarðhita.