Gosefni
Gosefni sem ná yfirborði í eldgosum skiptast í gosgufur, hraun og gjósku. Gosgufurnar eru aðallega vatnsgufa og ýmsar loftegundir sem losna úr iðrum jarðar í eldgosum og streyma út í andrúmsloftið. Bergkvika sem streymir upp úr eldfjalli og stroknar nefnist hraun. Hún kemur beint eða óbeint úr möttli jarðar og er á bilinu 700-1200 gráðu heit.